spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÚrslitakeppnin farin af stað hjá Styrmi

Úrslitakeppnin farin af stað hjá Styrmi

Styrmir Snær Þrastarson og Belfius Mons máttu þola tap í dag í fyrsta leik 16 liða úrslita BNXT deildarinnar í Hollandi/Belgíu, 80-64.

Styrmir lék 28 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 14 stigum og stolnum bolta.

Antwerp eru því komnir með yfirhöndina í einvíginu 1-0, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig áfram í átta liða úrslitin.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -