Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante máttu þola tap í Leb Oro deildinni á Spáni í dag gegn Forca Lleida, 91-77.
Á tæpri 21 mínútu spilaðri í leiknum skilaði Jón Axel 8 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.
Eftir leikinn er Alicante í 8. sæti deildarinnar með 18 sigra og 12 töp.