spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaÚrskurður í máli DeAndre Kane - Missir af leik tvö gegn Stólunum

Úrskurður í máli DeAndre Kane – Missir af leik tvö gegn Stólunum

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar er varðaði háttsemi leikmanns Grindavíkur DeAndre Kane í leik liðsins gegn Stjörnunnar í Subway deildinni þann 28. mars síðastliðinn.

Niðurstöðuna og úrskurðinn má lesa hér fyrir neðan, en þar er DeAndre dæmdur í eins leiks bann og mun hann því missa af öðrum leik liðsins gegn Tindastóli í 8 liða úrslitum Subway deildar karla.

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, DeAndre Kane, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar eftir leik Stjörnunnar og Grindavíkur, Subwaydeild karla, sem fram fór þann 28. mars 2024.

úrskurð má lesa í heild sinni hér

Fréttir
- Auglýsing -