Orri Gunnarsson og svanirnir frá Gmunden lögðu St. Pölten í austurrísku úrvalsdeildinni í dag, 108-71.
Á tæpum 23 mínútum spiluðum skilaði Orri 11 stigum, 3 stigum og 2 stoðsendingum.
Eftir leikinn eru svanirnir í 2.-3. sæti efri hluta austurrísku deildarinnar með 26 stig líkt og Traiskirchen Lions.