spot_img

Tekur við Stjörnunni

Ólafur Jónas Sigurðarson mun taka við liði Stjörnunnar í Subway deild kvenna fyrir næsta tímabil, 2024-25. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlunum fyrr í dag.

Ólafur Jónas kemur til Stjörnunnar úr meistaraflokksleyfi sem hann tók sér eftir að hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn með Val á síðustu leiktíð.

Ólafur tekur við af Arnari Guðjónssyni, sem tilkynnt var í mars að myndi yfirgefa liðið eftir yfirstandandi tímabil.

Fréttir
- Auglýsing -