spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTryggvi Snær og Zaragoza lutu í lægra haldi gegn Bilbao

Tryggvi Snær og Zaragoza lutu í lægra haldi gegn Bilbao

Tryggvi Snær Hlinason og Casademont Zaragoza máttu þola tap í kvöld gegn Bilbao í ACB deildinni á Spáni, 67-74.

Eftir leikinn er Zaragoza í 16. sæti deildarinnar með tvo sigra og sjö töp það sem af er tímabili.

Á rúmum 11 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi 3 stigum og 4 fráköstum.

Næsti leikur Tryggva og Zaragoza er þann 3. desember gegn Unicaja.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -