Hamar/Þór tryggði sig beint upp í Subway deild kvenna með sigri gegn Ármanni í lokaumferð fyrstu deildarinnar í Laugardalshöllinni, 72-82.
Karfan spjallaði við Emmu Hrönn Hákonardóttur fyrirliða Hamars/Þórs eftir leik í Laugardalshöllinni. Emma var frábær fyrir Hamar/Þór í lokaleiknum, skilaði 20 stigum, 7 fráköstum og 4 stoðsendingum á rúmum 28 mínútum spiluðum.