KR lagði Ármann í lokaumferð fyrstu deildar karla í Laugardalshöllinni í kvöld, 61-90. Með sigrinum tryggði KR sér efsta sæti deildarinnar og þar með beinan farmiða aftur upp í Subway deildina, en sigur kvöldsins var sá þrettándi í röð hjá félaginu í deildinni.
Karfan spjallaði við Veigar Áka Hlynsson fyrirliða KR eftir leik í Laugardalshöllinni.