Einn leikur fór fram í fyrstu deild karla í dag.
Topplið KR lagði Þrótt nokkuð örugglega í Ljónagryfjunni, 63-103. Um var að ræða frestaðan leik sem fara átti fram í febrúar, en vegna heitavatsnleysis á Suðurnesjum vegna eldhræringa þurfti að finna leiknum nýjan tíma.
Eftir leikinn er KR í efsta sæti deildarinnar með 38 stig, en þeir hafa bara tapað tveimur leikjum á tímabilinu til þessa. Síðasta umferð deildarinnar er á dagskrá mánudaginn 25. mars, en þá getur KR tryggt sig beint aftur upp í Subway deildina ef þeir ná að leggja Ármann í Laugardalshöllinni.
Úrslit kvöldsins
Fyrsta deild karla
Þróttur 63 – 103 KR