Ísland hefur leik í undankeppni EuroBasket 2025 komandi fimmtudag 22. febrúar. Í riðil með Íslandi eru ásamt Ungverjalandi, lið Ítalíu og Tyrklands, en seinni leikur þessa fyrsta glugga keppninnar er gegn Tyrklandi í Istanbúl á sunnudag 25. febrúar.
Hérna er 16 leikmanna hópur Íslands
Karfan kom við á æfingu hjá liðinu í kvöld og ræddi við Craig Pedersen þjálfara liðsins um leikina tvo og möguleika Íslands á að tryggja sig á lokamótið í þriðja skipti á síðustu tíu árum.