Ísak Máni Wíum þjálfari ÍR í Subway deild karla var í dag dæmdur í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd fyrir háttsemi sína í leik liðsins gegn Grindavík þann 27. október síðastliðinn.
Aga- og úrskurðarnefnd komst að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar, en þau má lesa hér fyrir neðan.
Agamál 26/2022-2023
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Daði Steinn Arnarsson, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Þorlákshafnar/Hamars og ÍR B, 12. flokki karla, sem fram fór þann 25. október 2022.
Agamál 27/2022-2023
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ragnar Bragason, leikmaður ÍR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Grindavík gegn ÍR, sem fram fór þann 27 október 2022.
Agamál 28/2022-2023
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ísak Máni Wíum, þjálfari ÍR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Grindavík gegn ÍR, sem fram fór þann 27 október 2022.
Agamál 29/2022-2023
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Haukur Hreinsson, leikmaður Hrunamanna, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hrunamanna gegn Álftanes, sem fram fór þann 28 október 2022.