Hilmar Smári Henningsson og ísbirnirnir frá Bremerhaven máttu þola tap í kvöld gegn Hagen í Pro A deildinni í Þýskalandi, 86-77.
Á tæpum 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Hilmar Smári 17 stigum, 3 fráköstum og stoðsendingu.
Eftir leikinn er Bremerhaven í 10. sæti deildarinnar með tíu sigra og tólf töp það sem af er tímabili.