spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÆgir Þór hafði betur gegn sínum gömlu félögum

Ægir Þór hafði betur gegn sínum gömlu félögum

Ægir Þór Steinarsson og HLA Alicante lögðu Burgos í kvöld í Leb Oro deildinni á Spáni, 98-101.

Segja má að Ægir hafi því lagt sína fyrrum félaga, en hann lék með Burgos tímabilið 2016-17, en það tímabil hjálpaði hann liðinu að vinna Leb Oro deildina.

Eftir leikinn er Alicante í 6. sæti deildarinnar með þrjá sigra og tvö töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Ægir 8 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum.

Næsti leikur Alicante er þann 4. nóvember gegn Juaristi.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -