Elvar Már Friðriksson og PAOK töpuðu fyrir Olympiacos í grísku úrvalsdeildinni í kvöld, 77-62.
Elvar Már hafði hægt um sig í stigaskorun í leiknum, en á tæpum 35 mínútum spiluðum skilaði hann 3 stigum, 7 fráköstum, 9 stoðsendingum og stolnum bolta.
PAOK eru eftir leikinn í 7. sæti deildarinnar með 23 stig, 7 stigum fyrir neðan Panathinaikos sem eru í efsta sætinu.