Tryggvi Snær Hlinason og Bilbæingar máttu þola tap í kvöld fyrir Morabanc Andorra í ACB deildinni á Spáni, 87-78.
Tryggvi hafði frekar hægt um sig á þeim rúmu 11 mínútum sem hann spilaði í leiknum, en hann skilaði þremur stigum og frákasti.
Bilbao eru eftir leikinn í 12. sæti deildarinnar með sjö sigra og 11 töp það sem af er tímabili.