Hilmar Smári Henningsson og ísbirnirnir frá Bremerhaven lögðu Nurnberg Falcons í Pro A deildinni í Þýskalandi í dag, 65-79.
Á tæpum 19 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Hilmar Smári 16 stigum og stoðsendingu, en hann var stigahæstur í liði Bremerhaven í leiknum.
Eftir leikinn eru Hilmar og Bremerhaven í 11. sæti deildarinnar með sjö sigra og tíu töp það sem af er tímabili.