Stjarnan lagði ÍR í Skógarseli í þriðju umferð Subway deildar karla í kvöld, 80-92. Eftir leikinn er Stjarnan því með tvo sigra og eitt tap á meðan að ÍR hefur tapað tveimur og unnið einn.
Karfan spjallaði við Hlyn Bæringsson fyrirliða Stjörnunnar eftir leik í Skógarseli. Hlynur skilaði risaframlagi fyrir sína menn í leik kvöldsins, 15 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar af bekk Stjörnunnar.