Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante töpuðu fyrir Real Betis í gærkvöldi í Leb Oro deildinni á Spáni, 97-78.
Á 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 13 stigum, 5 fráköstum og 2 stoðsendingum.
Alicante eru eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með níu sigra og sjö töp það sem af er tímabili.