Hilmar Smári Henningsson og ísbirnirnir frá Bremerhaven máttu þola tap í dag gegn Dresen Titans í þýsku Pro A deildinni, 81-87.
Á tæpum 24 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Hilmar Smári 8 stigum, 3 fráköstum, 2 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.
Bremerhaven eru eftir leikinn í 12. sæti deildarinnar með sex sigra og tíu töp það sem af er tímabili.