Elvar Már Friðriksson og PAOK máttu þola tap í dag gegn Maroussi í grísku úrvalsdeildinni, 79-85.
Elvar Már lék rúmar 33 mínútur í leiknum og skilaði á þeim 14 stigum, frákasti og 4 stoðsendingum.
PAOK eru eftir leikinn í 5. sæti deildarinnar með 19 stig, 5 stigum fyrir neðan Panathinaikos sem eru í efsta sætinu.