Keflavík lagði Hamar í Blue höllinni í kvöld í 12. umferð Subway deildar karla, 100-88. Eftir leikinn er Keflavík í 2. sæti deildarinnar með 8 sigra á meðan að Hamar er enn á botninum án sigurs eftir fyrstu tólf umferðirnar.
Karfan spjallaði við Danero Thomas nýjan leikmann Keflavíkur eftir leik í Blue höllinni, en hann lagði skóna á hilluna sem leikmaður Hamars fyrir áramótin.