Stjarnan hafði betur gegn Íslandsmeisturum Vals í 14. umferð Subway deildar kvenna í Origo höllinni í kvöld, 63-74. Eftir leikinn er Stjarnan í 2. sæti deildarinnar með 9 sigurleiki á meðan að Valur er í 7. sætinu með 4 sigra.
Karfan spjallaði við Hjalta Þór Vilhjálmsson þjálfara Vals eftir leik í Origo höllinni, en hann var ekki sáttur með þann tíma sem það er að taka að fá bandarískan leikmann liðsins Brooklyn Pannell löglega með liðinu.