spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaJón Axel semur við Grindavík

Jón Axel semur við Grindavík

Jón Axel Guðmundsson hefur skrifað undir samning við Grindavík og mun leika með félaginu í Subwaydeild karla út leiktíðina.

Jón Axel er 25 ára gamall og hefur leikið í atvinnumennsku í Þýskalandi og Ítalíu undanfarin tvö ár. Árin þar á undan var hann í háskólakörfuboltanum hjá Davidson háskólanum við afar góðan orðstír.

„Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur hjá Grindavík að Jón Axel hafi tekið ákvörðun um að spila með okkur í vetur,“ segir Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur. „Jón Axel mun styrkja okkar lið verulega og ég er gífurlega spenntur að vinna með honum. Hann hefur æft með okkur undanfarnar vikur og lítur vel út. Ég held að allir Grindavíkingar séu í skýjunum með að fá Jón Axel aftur heim í Grindavík.“

Jón Axel er kominn með leikheimild og verður með liði Grindavíkur í næsta leik gegn Keflavík annað kvöld.

Fréttir
- Auglýsing -