Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante máttu þola tap gegn Ourense í Leb Oro deildinni á Spáni í kvöld, 77-68.
Á tæpum 24 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 5 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum.
Eftir leikinn er Alicante í 7. sæti deildarinnar með átta sigra og sex töp það sem af er tímabili.