Lið Snæfells í fyrstu deild karla hefur sagt upp samningi sínum við Sam Burt. Tilkynnir félagið þetta á samfélagsmiðlum.
Sam var á mála hjá Hrunamönnum á síðasta tímabili, en hafði það sem af er þessu tímabili leikið níu leiki fyrir Snæfell og skilað í þeim 10 stigum, 7 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali.
Tímabilið hjá Snæfell hefur farið heldur hægt af stað. Þrátt fyrir að hafa átt marga góða leiki hefur félaginu aðeins tekist að tryggja sér sigur í tveimur af fyrstu tí leikjunum.