Sex leikir fara fram í fyrstu deild karla í kvöld.
Snæfell tekur á móti Þrótti í Stykkishólmi, Fjölnir fær Hrunamenn í heimsókn í Dalhús, ÍA og KR eigast við á Akranesi, Ármann fær Skallagrím í heimsókn í Laugardalshöllina, Þór tekur á móti Sindra í Höllinni á Akureyri og í Skógarseli mætir ÍR liði Selfoss.
Leikir dagsins
Fyrsta deild karla
Snæfell Þróttur – kl. 19:15
Fjölnir Hrunamenn – kl. 19:15
ÍA KR – kl. 19:15
Ármann Skallagrímur – kl. 19:15
Þór Sindri – kl. 19:15
ÍR Selfoss – kl. 19:30