spot_img
HomeFréttirMiðasala hafin á leik Íslands gegn Georgíu – Takmarkað magn miða í...

Miðasala hafin á leik Íslands gegn Georgíu – Takmarkað magn miða í boði

Ísland á heimaleik í nóvember 2022 gegn Georgíu föstudaginn 11. nóvember í annari umferð WorldCup 2023 Qualifiers keppni FIBA. Leikið verður í Laugardalshöll. Leikurinn hefst kl. 19:30 og verður sýndur beint á RÚV2. Seinni leikur liðsins í þessum nóvember-glugga verður gegn Úkraínu og fer hann fram í Riga í Lettlandi 14. nóvember og verður hann einnig sýndur beint á RÚV2.

Ísland hefur líklega aldrei átt betri möguleika á að komast áfram í lokakeppni heimsmeistaramóts, þar sem liðið er sem stendur í 3. sæti L riðils, en úr honum fara 3 lið af 6 á lokamótið. Leikir Íslands í þessum lokariðil undankeppninnar þó nokkrir og mikilvægt fyrir liðið að ná í úrslit í einhverjum þeirra ætli þeir sér að komast á lokamót HM 2023.

Miðasala er hafin á Stubb (ath öll miðasala fer eingöngu fram þar), en tekið er fram að takmarkað magn miða verður í boði á leikinn. Miðaverð fyrir fullorðna er 2500 kr. á meðan að 15 ára og yngri þurfa að greiða 1000 kr. fyrir miða.

KKÍ korthafar geta sótt til og með 25. október. Eftir það verða engin KKÍ-kort í gildi fyrir leikinn.

Allar nánari upplýsingar er að finna hér

Hérna er heimasíða undankeppninnar

Hér fyrir neðan má sjá leiki Íslands sem eftir eru í annarri umferð undankeppninnar:

Nóvember 2022:

ÍSLAND-GEORGÍA11. nóvember (heima)
ÚKRAÍNA-ÍSLAND14. nóvember (úti)

Febrúar 2023:

ÍSLAND-SPÁNN23. febrúar (heima)
GEORGÍA-ÍSLAND26. febrúar (úti)
Fréttir
- Auglýsing -