Þrír leikir fara fram í Subway deild kvenna í kvöld.
Fjölnir tekur á móti Njarðvík í Dalhúsum, Breiðablik heimsækir Grindavík og í Keflavík eigast við heimakonur og Haukar í slag einu taplausu liða deildarinnar það sem af er tímabili.
Lokaleikur umferðarinnar er svo á dagskrá á morgun, en í honum eigast við Valur og ÍR í Origo Höllinni.
Leikir dagsins
Subway deild kvenna
Fjölnir Njarðvík – kl. 18:15
Grindavík Breiðablik – kl. 19:15
Keflavík Haukar – kl. 20:15