Rúmenía lagði Ísland í dag í Constanta í fyrsta leik liðsins í undankeppni EuroBasket 2025, 82-70. Leikurinn var fyrri tveggja í þessum fyrsta glugga keppninnar, en Ísland leikur heima gegn Tyrklandi komandi sunnudag í seinni leiknum.
Karfan spjallaði við Thelmu Dís Ágústsdóttur leikmann Íslands eftir leik í Constanta. Thelma átti fínan leik þrátt fyrir tapið, skilaði 16 stigum og 4 stoðsendingum á um 32 mínútum spiluðum.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil