Spár formanna, þjálfara og fyrirliða liða og spá fjölmiðla fyrir Subway deild karla voru opinberaðar í hádeginu í gær á árlegum kynningarfundi deildarinnar. Í spá félaga er það Keflavík sem spáð er fyrsta sætinu og Tindastóli öðru. ÍR og Hetti er í báðum tilvikum spáð falli úr deildinni og samkvæmt niðurstöðum verða það Grindavík, KR og Haukar sem berjast um síðasta sæti úrslitakeppninnar.
Hérna má sjá spárnar fyrir Subway deild karla 2022-23
Karfan var á fundinum og spjallaði við Viðar Örn Hafsteinsson þjálfara Hattar, en hans mönnum er spáð 11. sæti þetta tímabilið.