spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaLítið breytist er spá formanna, þjálfara og fyrirliða er leiðrétt fyrir óeðlilegum...

Lítið breytist er spá formanna, þjálfara og fyrirliða er leiðrétt fyrir óeðlilegum atkvæðum

Spár formanna, þjálfara og fyrirliða liða og spá fjölmiðla fyrir Subway deild karla voru opinberaðar í hádeginu í dag á árlegum kynningarfundi deildarinnar. Í spá félaga er það Keflavík sem spáð er fyrsta sætinu og Tindastóli öðru. ÍR og Hetti er í báðum tilvikum spáð falli úr deildinni og samkvæmt niðurstöðum verða það Grindavík, KR og Haukar sem berjast um síðasta sæti úrslitakeppninnar.

Hérna má sjá spárnar fyrir Subway deild karla 2022-23

Í heild voru það 36 aðilar sem tóku þátt í spánni fyrir hönd félaga, en þar eru það leikmenn, þjálfarar og forráðamenn sem hafa atkvæðisrétt. Eitthvað var um að þessir aðilar væru nokkuð á skjön við meðaltal liðanna, þar sem að einhver þeirra setti sem dæmi ÍR og KR í efsta sæti, annar var með Tindastól í því neðsta og þá fengu Haukar einnig atkvæði í efstu sæti deildarinnar þrátt fyrir að vera nýliðar í deildinni.

Hér fyrir neðan má sjá spána uppfærða af körfuboltaspekingnum Björgvini Inga, en þar er hann búinn að taka út þessi atkvæði sem féllu alveg á skjön við meginstrauminn. Þar má sjá að sjálf spáin breytist lítið. Keflavík verður áfram í efsta sætinu og bæði Höttur og ÍR falla.

Fréttir
- Auglýsing -