Hilmar Smári Henningsson og ísbirnirnir frá Bremerhaven lögðu drekana frá Artland í gærkvöldi í 4. umferð Pro A deildarinnar í Þýskalandi, 80-74.
Hilmar Smári var virkilega öflugur í leiknum, en á rúmum 28 mínútum spiluðum skilaði hann 16 stigum, 3 fráköstum, 3 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Sigurinn var sá fyrsti fyrir Bremerhaven í deildarkeppni þessa tímabils, en eftir leikinn eru þeir í 15. sætinu með einn sigur og þrjú töp það sem af er.