Lykill: Dominykas Milka

Lykilleikmaður 2. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Njarðvíkur Dominykas Milka.

Í nokkuð sterkum sigur Njarðvíkur gegn sterku liði Hauka í Ólafssal var Dominykas besti leikmaður vallarins. Á 34 mínútum spiluðum skilaði hann 24 stigum, 14 fráköstum, 6 stoðsendingum, 2 stolnum boltum og 2 vörðum skotum. Þá var hann einnig nokkuð skilvirkur í leiknum með 37 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn

  1. umferð – Chaz Williams / Njarðvík
  2. umferð – Dominykas Milka / Njarðvík