Nýliðar Þórs lögðu Snæfell í Höllinni á Akureyri í kvöld í þriðju umferð Subway deildar kvenna, 86-47.
Atkvæðamest fyrir heimakonur í leiknum var Lore Devos með 28 stig og 10 fráköst. Þá bætti Madison Sutton við 14 stigum, 17 fráköstum og 5 stoðsendingum.
Fyrir gestina úr Stykkishólmi var það Mammusu Secka sem dró vagninn með 20 stigum, 11 fráköstum og Eva Rupnik var henni næst með 16 stig og 5 fráköst.
Þór hefur það sem af er tímabili unnið tvo leiki og tapað einum á meðan að Snæfell hefur tapað öllum þremur leikjum sínum.
Myndasafn (Palli Jóh)