Icelandic Glacial æfingamótið árlega rúllaði af stað í Þorlákshöfn í kvöld með tveimur leikjum.
Í fyrri leik kvöldsins hafði Njarðvík betur gegn heimamönnum í Þór eftir framlengdan leik, 108-111. Atkvæðamestur fyrir Njarðvík í leiknum var Oddur Rúnar Kristjánsson með 29 stig og 4 fráköst. Fyrir heimamenn var það Josep Perez sem dró vagninn með 36 stigum og 9 stoðsendingum.
Karfan spjallaði við Loga Gunnarsson leikmann Njarðvíkur eftir leik í Þorlákshöfn.