Grindavík hefur samið við Sigurð Bergvin Ingibergsson fyrir næstu tvö tímabil í Subway deild karla.
Þetta er fyrsti samningurinn sem Sigurður Bergvin gerir við félagið en hann er fæddur árið 2006. Sigurður er uppalinn hjá Grindavík og hefur leikið með yngri flokkum félagsins.
Sigurður Bergvin er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leikið stöðu framherja og einnig bakvarðar. Hann er 191 cm á hæð. Sigurður hefur verið í kringum leikmannahópinn hjá meistaraflokki síðustu mánuði en var óheppinn með meiðsli á síðustu leiktíð en er að komast á fullt skrið. Sigurður hefur jafnframt verið valinn í æfingahópa hjá yngri landsliðum Íslands.
„Sigurður Bergvin er ungur og spennandi leikmaður. Hann hefur fulla burði til að stimpla sig inn í leikmannahóp hjá meistaraflokki á næstu árum. Ég hlakka til að vinna áfram með Sigurði og sjá hann vaxa úr grasi sem leikmaður Grindavíkur,“ segir Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur.