Þór Akureyri lagði Hamar/Þór í gærkvöldi í æfingaleik heima í Höllinni á Akureyri, 91-82. Þór Akureyri verða nýliðar í Subway deild kvenna á komandi tímabili á meðan að Hamar/Þór verða í fyrstu deildinni.
Tölfræðina má sjá hér fyrir neðan, en eins og sjá má var það Lore sem var stigahæst fyrir heimakonur í leiknum með 35 stig og var Hulda Ósk henni næst með 17 stig. Fyrir Hamar/Þór var það Aniya sem dró vagninn með 30 stigum og bætti Hildur við 14 stigum.
Myndasafn (Palli Jóh)
Ert þú með fréttir af æfingaleik? Endilega sendið tölfræðiskýrslu eða myndir á [email protected].