spot_img
HomeFréttirÍslensku FIBA dómararnir tilnefndir

Íslensku FIBA dómararnir tilnefndir

{mosimage}

Íslensku FIBA dómararnir fjórir fengu allir tilnefningar frá FIBA á leiki í Evrópukeppninni næsta haust, þar af þrjár tilnefningar í A-deild.

Sigmundur Már Herbertsson ríður á vaðið, en hann dæmir leik Dana og Króata í Danmörku 3. september. Danir eru í keppni við Króata, Letta og Eista um sæti í A-deild karla. Þremur dögum síðar dæmir Kristinn Óskarsson leik Dana og Letta í Danmörku.

Pétur Hrafn Sigurðsson fer til Finnlands 13. september og verður commissioner á leik heimastúlkna og Rúmena, en sá leikur er líka leikur um sæti í A-deild.

Björgvin Rúnarsson fékk úthlutað leik Breta og Portúgals í B-deild kvenna, en sá leikur fer fram í Bretlandi 23. september.

www.kki.is

 

Fréttir
- Auglýsing -