{mosimage}
Unglingalandsliðsmaðurinn Hafþór Björnsson er genginn til liðs við KR úr FSu. Hafþór er uppalinn Bliki, en ákvað á dögunum að söðla um og leika með KR.
Hafþór Björnsson er 204 cm hár og fæddur 1988, hann lék í fyrra með FSu á Selfossi, þar sem að hann var bróðurpart vetrarins meiddur á ökkla og þurfti meðal annars að ganga undir aðgerð. Hafþór spilaði því lítið með liðinu en hann bætti líkamlegan styrk sinn og mun reynast KR-ingum mikill styrkur bæði í drengja- og unglingaflokk. Að auki mun Hafþór æfa með meistaraflokk félagsins.
Hafþór var spurður hvað hefði ráðið því að hann skipti yfir í KR: Ég vildi breyta til eftir góðan tíma hjá FSu og fannst KR vera með besta prógrammið í gangi, og ákvað þá í samráði við foreldra mína að skipta. Ég vildi skipta í lið sem hefði alvöru drengja- og unglingaflokk og vonaðist einnig til að fá að æfa með meistaraflokk. Mig hlakkar til að takast á við veturinn framundan, því það eru traustir strákar í KR.
Hafþór er í tólf manna hóp í 18 ára landsliðinu, sem heldur til Grikklands á laugardaginn. Þar tekur liðið þátt í A-keppni evrópumóts 18 ára liða.
Frétt af www.kr.is/karfa