spot_img
HomeFréttirDómaranámskeið í Smáranum

Dómaranámskeið í Smáranum

09:00

{mosimage}

Dómaranámskeið verður haldið á vegum KKÍ dagana 3.-4. nóvember næstkomandi.

Námskeiðið verður haldið í Smáranum í Kópavogi og hefst á föstudagskvöldinu kl 18:30. Námskeiðinu lýkur með skriflegu og verklegu prófi og þeir sem standast þau fá fullgild dómararéttindi.

KKÍ hvetur öll félög til að senda fólk á námskeiðið, þar sem fjöldi starfandi dómara í dag er með minnsta móti. Leiðbeinandi verður Gunnar Freyr Steinsson.

Skráningar verða að berast í síðasta lagi fimmtudaginn 2. nóvember á netfangið [email protected].

Dagskráin verður lauslega þessi:
Föstudagur 3. nóvember:
18:30-22:00 – Bóklegt

Laugardagur 4. nóvember:
09:00-11:30 – Bóklegt + skriflegt próf
12:00-18:00 – Verklegt próf

Athugið að tímasetningar geta breyst lítillega.

Þátttökugjald er ekkert.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -