8:18
{mosimage}
(Thomas Soltau er stigahæstur í FIBAEuroCup Challenge)
Keflavík leikur í kvöld seinasta heimaleik sinn í D riðli FIBA EuroCup Challenge þetta tímabilið. Gestir þeirra verða tékkneska liðið Mlekarna Kunin sem lögðu Keflvíkinga í Tékklandi 107-74. Með sigri í kvöld heldur Keflavík í vonina um að komast upp úr riðlinum en tap gerir vonir þeirra nánast að engu.
Á heimasíðu Keflavíkur er hægt að lesa umfjöllun um leikinn í kvöld.
Mynd: VF/Þorgils