Íslenska karlalandsliðið mætir Búlgaríu kl. 14:00 í dag í beinni útsendingu á RÚV í þriðja leik sínum í forkeppni Ólympíuleika 2024. Íslenska liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum mótsins gegn Tyrklandi og Úkraínu og á því líkt og Búlgaría ekki kost á að komast í undanúrslit keppninnar.
Leikir Íslands í riðlakeppni mótsins í Tyrklandi:
12. ágúst / Tyrkland 99 – 72 Ísland
13. ágúst / Úkraína 82 – 69 Ísland
15. ágúst gegn Búlgaríu
Möguleikar Íslands á að tryggja sér farmiða á Ólympíuleikana í París
Hér fyrir neðan eru þeir 12 leikmenn sem verða í liði Íslands í leik dagsins.
Nafn · Lið (skráð hjá KKÍ) · Landsleikir
Elvar Már Friðriksson · PAOK, Grikklandi · 67
Hilmar Smári Henningsson · Haukar · 12
Jón Axel Guðmundsson · Victoria Libertas Pesaro, Ítalíu · 29
Kristinn Pálsson · Aris Leuuwarden, Hollandi · 30
Orri Gunnarsson · Haukar · 4
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll · 14
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Hamar · 63
Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll · 32
Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn · 13
Tryggvi Snær Hlinason · Bilbao Basket, Spánn · 62
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson · Oviedo, Spánn · 25
Ægir Þór Steinarsson (Fyrirliði) · Stjarnan · 84
Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Pavel Ermolinskij
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil