spot_img
HomeFréttir18 stiga sigur hjá Valencia

18 stiga sigur hjá Valencia

16:18 

{mosimage}

Pamesa Valencia lið Jóns Arnórs Stefánssonar lyfti sér uppí sjötta sætið í ACB deildinni á spáni með góðum sigri á botnliðinu Grupo Capitol Valladolid 79-61.  Jón Arnór skoraði 2 stig.

Jón Arnór var í byrjunarliði Valencia og lék í tæpar 24 mínútur og hafði hægt um sig í stigaskorunni, hann misnotaði öll fjögur skot sín, en var öryggið uppmálað á vítalínunni og skoraði bæði stigin sín þar.  Jón Arnór fékk góða dóma fyrir varnarleik sinn í kvöld.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 23-13 og heimamenn í Valencia komnir með góð tök á leiknum.  Þeir bættu við forystuna í öðrum leikhluta og leiddu í hálfleik 44 – 27.  Gestirnir náðu að minnka muninn í þriðja leikhluta í 58 – 47 en lengra komust þeir ekki þar sem að Valencia léku vel í fjórða leikhluta og sigruðu sem fyrr segir 79-61.

Með sigrinum eru Pamesa Valencia komnir í sjötta sætið með 7 sigra og 6 tapleiki.  Mjög jafnt er hjá liðunum í deildinni og stutt niður í 12 sætið t.d.  Þegar að þetta er skrifað eru eitthvað af leikjum í 13. umferðinni ólokið.

Næsti leikur hjá Valencia er gegn C.B. Granada á útivelli 22. desember.  C.B. Granada eru í 12. sæti deildarinnar með svipað vinningshlutfall og Valencia.  

Myndin er tekin af heimasíðu Pamesa Valencia

Frétt af www.kr.is/karfa

Fréttir
- Auglýsing -