spot_img
HomeFréttirFjögurra stiga tap hjá Helga Má

Fjögurra stiga tap hjá Helga Má

10:32

{mosimage}

BC Boncourt lið Helga Más Magnússonar tapaði á heimavelli í kvöld 75-79 í fyrri leik liðsins við Lugano Tigers í deildarbikarkeppninni í Sviss. Helgi Már skoraði 10 stig.

Leiknir eru tveir leikir í þessari bikarkeppni heima og að heiman. Fyrri leikurinn var sem sagt á heimavelli og var jafnt í hálfleik 29-29. Helgi Már sem hafði verið rólegur í fyrri hálfleik skoraði öll sín 10 stig í síðari hálfleik, en það var ekki nóg þar sem að heimamenn gáfu sigurinn frá sér á lokamínútunni.

Þeir eiga þá síðari leikinn eftir á útivelli og þurfa að sigra með 5 stigum eða meira til að fara áfram í keppninni. Síðari leikurinn fer fram 3. janúar.

Hér er hægt að sjá úrslit leikjanna í bikarnum

Frétt af www.kr.is/karfa

Mynd: Roger Meier

 

Fréttir
- Auglýsing -