16:25
{mosimage}
Fjölnismenn leika á föstudag gegn KR í Grafarvogi en þá mun þjálfari Fjölnis, Bárður Eyþórsson, taka út leikbann sem hann var á dögunum dæmdur í. Bárður fékk dæmdar á sig tvær tæknivillur í leik gegn Keflavík þann 21. janúar og fékk í kjölfarið eins leiks bann.
Þeir Bjarni Karlsson og Páll Briem munu stjórna liði Fjölnis gegn KR á föstudag þar sem Benedikt Guðmundsson, sem þjálfaði Fjölni áður en hann tók við KR, kemur í heimsókn með lærlinga sína.