6:51
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa forráðamenn kvennaliðs Hamars í körfubolta skipt um þjálfara. Andri Kristinsson var látinn fara og Ari Gunnarsson, aðstoðarþjálfari karlaliðs Hamars/Selfoss, ráðinn í hans stað.
Halla Gunnarsdóttir, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Hamri, vildi ekki staðfesta þessar fréttir í gærkvöldi en sagði að verið væri að vinna í þessum málum. Hamar tapaði í fyrrakvöld fyrir Breiðabliki í Iceland Express-deild kvenna og fátt annað en fall blasir við liðinu.