8:04
{mosimage}
Eins og karfan.is greindi frá á föstudag steinlágu Logi Gunnarsson og félagar í ToPo fyrir KTP Basket.
Logi Gunnarsson komst ekki á blað í stigaskori í leiknum en hann lék einungis 19 mínútur þar sem hann meiddist á læri. Hann fór í skoðun í gær þar sem kom í ljós að meiðslin eru ekki jafn alvarleg og talið var í fyrstu og mun hann æfa á mánudag og verður staðan metin þá.
Mynd: Tuomas Venhola