spot_img
HomeFréttirJón Arnar: Frábær vörn allan tímann

Jón Arnar: Frábær vörn allan tímann

14:30 

{mosimage}

Jón Arnar Ingvarsson var sigursæli bróðirinn í Laugardalshöll um helgina en ÍR-ingar lögðu Hamar/Selfoss 83-81 í jöfnum og spennandi leik. Jón sagði að ÍR hefði vissulega verið í vandræðum með Byrd en leikur þeirra hefði engu að síður gengið upp. 

,,Þetta var alveg frábær leikur og við spiluðum frábæra vörn allan tímann og áttum í smá vandræðum með Byrd en þetta gekk allavega upp hjá okkur. Hamar/Selfoss var að spila mjög vel og hittu mjög vel og ég held að hvaða lið geti verið stolt af því að vinna H/S eins og þeir spiluðu í þessum leik,” sagði Jón og nokkrum sekúndum síðar komu liðsmenn ÍR á harðahlaupum og tolleruðu þjálfara sinn.

Fréttir
- Auglýsing -