09:08
{mosimage}
(Alda í leik í Hollandi með Yellow Bikes)
Stúdínur höfðu 12 stiga sigur á botnliði Hamars í gærkvöldi í Iceland Express deild kvenna. Lokatölur leiksins voru 71-59 ÍS í vil. Alda Leif Jónsdóttir snéri aftur í raðir ÍS eftir barnsburð og lék í 6 mínútur í leiknum og gerði á þeim tíma 8 stig. Alda Leif lék sem atvinnumaður í Hollandi á síðustu leiktíð en hún og barnsfaðir hennar, Sigurður Þorvaldsson, snéru aftur heim til Íslands fyrir þessa leiktíð.
Casey Rost meiddist í liði ÍR í gær en hún gerði 15 stig í leiknum. Hjá Hamri var Anne Flesland með 19 stig og komu 13 þeirra af vítalínunni.
Heimild: Fréttablaðið – www.visir.is