14:05
{mosimage}
Steve Nash körfuboltastjarna sem leikur með Phoenix Suns í NBA-deildinni segist vel geta hugsað sér að fjárfesta í enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham. Nash á breska foreldra og hefur verið aðdáandi Tottenham frá unga aldri.
Nash, sem er 33 ára gamall, er vellauðugur en talið er hann hafi hagnast um 50 milljónir punda, 6,5 milljarða króna á ferli sínum í NBA en Nash lék í sex ár með Dallas Mavericks áður en hann gekk í raðir Phoenix fyrir einu og hálfu ári.
Hluti af fjölskyldu Nash býr í Norður London og hann hefur vingast við Damien Comolli framkvæmdastjóra Tottenham en þeir kynntust á HM í Þýskalandi síðastliðið sumar.
,,Ef einhverjir aðilar eru að hugleiða að kaupa Spurs þá myndi ég vilja taka þátt í því. Sem aðdáandi þá sýnist mér að Tottenham geti orðið arðbært og ensk úrvalsdeildarlið eru greinilega orðin vinsæl fjárfesting fyrir kaupsýslumenn út um allan heim," segir Nash við breska blaðið Daily Star.